| |


Starfsemi í Jónshúsi er margvísleg, húsið er í dag fyrst og
fremst rammi um félagsstarfsemi hinna fjölmörgu Íslendinga sem búsettir eru á
Kaupmannahafnar- svæðinu.
|
|
| |
|
|
|
| |
Félagsstarfsemi |
|
| |
|
Starfsemi í Jónshúsi er margvísleg, húsið er í dag fyrst og fremst rammi
um félagsstarfsemi hinna fjölmörgu Íslendinga sem búsettir eru á
Kaupmannahafnarsvæðinu. Skrifstofu og vinnuaðstaða er fyrir
félög Íslendinga en fjöldi félaga nýtir sér aðstöðu
í húsinu til funda og samkomuhalds af ýmsum toga.
Sunnudagana 26. sept. 25. okt. og 29. nóv. er á boðstólum kaffihlaðborð milli kl. 14.00 og 16.00, umsjón með kaffisölunni hafa félagar í
kvennakórnum, kór íslenska safnaðarins, Stöku
o.fl. haft með höndum.
Í Jónshúsi er bókasafn Íslendinga í Kaupmannahöfn og Minningarstofur Jóns
Sigurðssonar. Fræðimaður, sem dvelur hverju sinni í fræðimannsíbúð Alþingis við Skt. Paulsgade,
hefur til afnota vinnustofu á 2. hæð hússins.
Umsjónarmaður Jónshúss er Jón R. Runólfsson. Umsjónarmaður hefur umsjón og
eftirlit með viðhaldi og rekstri hússins og fræðimannsíbúðar, raðar niður dagskrá
hússins o.s.frv. Skrifstofa umsjónarmanns er á 2. hæð og er síminn
33137997, netfang : jonshus@mail.tele.dk
Eftirtaldir aðilar eru með fasta starfsemi í húsinu:
AA-deild mánudaga
AA-deild miðvikudaga
AA-deild föstudaga
AA-deild sunnudaga
Al-Anon deild þriðjudaga
Bókmenntaklúbburinn THOR
Bókasafn íslendinga í Kaupmannahöfn
DA-deild miðvikudaga
Íslenski skólinn
Íslenski söfnuðurinn
Íslendingafélagið
Hugleiðslufundr laugardaga
Konukvöld
Kór íslenska safnaðarins
Kvennakór Kaupmannahafnar
Staka, blandaður kór
Sunnudagaskólinn
|
|
|
|