Starfsemi
Starfsemi í Jónshúsi í Kaupmannahöfn er margvísleg. Á þriðju hæð hússins er sýning um Jón Sigurðsson, líf hans og störf auk bókasafns. Þá er í húsinu skrifstofa fræðimanns, sem hefur íbúð í Skt. Poulsgötu 70. Á fyrstu hæð er samkomusalur þar sem oft eru auglýstar samkomur og sýningar íslenskra listamanna.
Þá er í húsinu aðstaða fyrir félagsstarfsemi þeirra fjölmörgu Íslendinga sem búsettir eru á Kaupmannahafnar-svæðinu. Meðal annars funda og æfinga- og kennsluaðstaða Íslendingafélagsins, Stúdentafélagsins, íslenska safnaðarins, kórs ísl. safnaðarins, Stöku, ísl. kvennakórsins, íslenska skólans, sunnudagaskólans ofl.
Kort
