Fræðimannsíbúð

Fræðimannsíbúð

Íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn er starfrækt samkvæmt reglum um hús Jóns Sigurðssonar sem forsætisnefnd Alþingis setur. Henni er úthlutað árlega tímabilið 1. september til 31. ágúst. Fræðimenn, sem hyggjast vinna að rannsóknum eða verkefnum í Kaupmannahöfn, geta sótt um afnot af íbúðinni eftir auglýsingu (venjulega í mars eða apríl). Íbúðin er í Skt. Paulsgade 70 (skammt frá Jónshúsi) en auk þess hefur fræðimaður vinnuherbergi (með tölvubúnaði) í Jónshúsi. Íbúðin er þriggja herbergja (um 80 ferm.) og fylgir henni allur nauðsynlegur heimilisbúnaður. Afnotin eru endurgjaldslaus, að undanskildum símakostnaði. Dvalartími í íbúðinni er að jafnaði þrír mánuðir en til greina kemur skemmri tími eða lengri eftir umfangi verkefnis og öðrum atvikum.

Sími fræðimanns er 00 45 21623448



Póstlisti



Þetta vefsvæði byggir á Eplica