Úthlutanir

Úthlutun 2004-2005

Úthlutun fræðimannsíbúðar
Húss Jóns Sigurðssonar
í Kaupmannahöfn 2004-2005.
(Fréttatilkynning.)

Úthlutunarnefnd fræðimannsíbúðar samkvæmt reglum um Hús Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn hefur lokið störfum og úthlutað íbúðinni frá 1. september 2004 til 31. ágúst 2005. Í úthlutunarnefndinni eiga sæti Halldór Blöndal, forseti Alþingis, Þorsteinn Pálsson, sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn, og dr. Jakob Yngvason prófessor. Ritari nefndarinnar er Helgi Bernódusson, aðstoðarskrifstofustjóri Alþingis.
Alls bárust nefndinni 24 umsókn að þessu sinni.

Átta fræðimenn fá afnot af íbúðinni, sem hér segir:
Arndís S. Árnadóttir, Norræn áhrif á íslenska hönnunarsögu 1930-1970.
Guðjón Friðriksson, Ævisaga Hannesar Hafsteins.
Guðmundur Hálfdanarsson, Íslensk sjálfstæðisbarátta í augum Dana.
Helga Kress, Ævisaga Maríu Stephensen sögð í bréfum.
Jörgen L. Pind, Guðmundur Finnbogason sálfræðingur.
Sigurður Gylfi Magnússon, Hugmyndafræði hversdagslífsins.
Sven Þ. Sigurðsson, Bútareiknilíkön af straumum sjávar og hafíss.
Þórunn Sigurðardóttir, Íslensk erfiljóð frá 17. öld.

Fræðimannsíbúðin í Kaupmannahöfn, tengd nafni Jóns Sigurðssonar, er skammt frá Jónshúsi, í Sankt Pauls Gade 70. Fræðimaður hefur vinnustofu í Jónshúsi.

(1. júní 2004.)


Úthlutun 2004-2005
Íbúðin var auglýst til afnota í Morgunblaðinu 4. apríl  sl. 
Umsóknarfrestur er til 23. apríl 2004.

Meðfylgjandi er umsóknareyðublað og nánari reglur um umsóknina.

Umsóknum skal skila til skrifstofu Alþingis eða íslenska sendiráðsins í Danmörku.

Íbúð fræðimanns í Jónshúsi
Skrifstofu Alþingis
150 Reykjavík.
Islands ambassade
Strandgade 89,
DK-1401 København K
Danmark





Tungamál




Þetta vefsvæði byggir á Eplica