Úthlutun 2002-2003
Úthlutun fræðimannsíbúðar
Húss Jóns Sigurðssonar
í Kaupmannahöfn 2003-2004.
(Fréttatilkynning.)
Úthlutunarnefnd fræðimannsíbúðar samkvæmt reglum um Hús Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn hefur lokið störfum og úthlutað íbúðinni frá
1. september 2003 til 31. ágúst 2004. Í úthlutunarnefndinni eiga sæti Halldór Blöndal, forseti Alþingis, Þorsteinn Pálsson, sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn, og dr. Jakob Yngvason prófessor. Ritari nefndarinnar er
Helgi Bernódusson, aðstoðarskrifstofustjóri Alþingis.
Alls bárust nefndinni 28 umsóknir að þessu sinni.
Sjö fræðimenn fá afnot af íbúðinni, sem hér segir:
Guðmundur Magnússon, myntbandalög í orði og á borði.
Jón Þ. Þór, ævisaga dr. Valtýs Guðmundssonar.
Páll Björnsson, Jón Sigurðsson : Samband þjóðar og hetju.
Páll Hreinsson, hæfisreglur stjórnsýslulaga.
Sigrún Pálsdóttir, ævisaga Þóru Pétursdóttur.
Sr. Sigurður Pálsson, kirkja og skóli á 20. öld.
Þorleifur Hauksson, útgáfa Sverris sögu á vegum Fornritafélagsins.
Fræðimannsíbúðin í Kaupmannahöfn, tengd nafni Jóns Sigurðssonar, er skammt frá Jónshúsi, í Sankt Pauls Gade 70. Fræðimaður hefur vinnustofu í Jónshúsi.
(19. júní 2003.)
Úthlutun 2003-2004
Íbúðin var auglýst til afnota í Morgunblaðinu 30. mars sl.
Umsóknarfrestur er til 25. apríl 2003.
Meðfylgjandi er umsóknareyðublað og nánari reglur um umsóknina.
Umsóknum skal skila til skrifstofu Alþingis eða íslenska sendiráðsins í Danmörku.
| Íbúð fræðimanns í Jónshúsi Skrifstofu Alþingis 150 Reykjavík. |
Islands ambassade Dantes Plads 3 1556 København V, Danmark |
