Úthlutunarreglur
Reglur um fræðimannsíbúð Jóns Sigurðssonar
Við Skt. Paulsgade 70 í Kaupmannahöfn
1. gr.
Fræðimannsíbúð í eigu Alþingis við Skt. Paulsgade 70 í Kaupmannahöfn, tengd Húsi Jóns Sigurðssonar, skal fengin íslenskum fræðimanni til búsetu í því skyni að greiða fyrir rannsóknum hans og fræðastörfum.
2. gr.
Afnot íbúðarinnar eru veitt endurgjaldslaust með öllum nauðsynlegum heimilisbúnaði. Stjórn Húss Jóns Sigurðssonar ákveður nánar hvernig íbúðin er útbúin og annast rekstur og viðhald hennar.
Hússtjórnin getur sett nánari skilmála um afnot og umgengni.
3. gr.
Úthlutunarnefnd ráðstafar íbúðinni hverju sinni eftir þeim umsóknum sem berast.
Forseti Alþingis skipar þrjá menn í nefndina að höfðu samráði við forsætisnefnd. Þess skal gætt að þeir hafi fræðilega þekkingu, komi af ólíkum fræðasviðum og séu af báðum kynjum. Einn þeirra skal vera formaður.
Nefndin skal skipuð til fjögurra ára. Skipunin fellur þó niður þegar nýr forseti er kjörinn.
4. gr.
Úthlutunarnefndin auglýsir íbúðina opinberlega til umsóknar í mars- eða aprílmánuði. Í auglýsingu skal getið hverjir séu skilmálar fyrir afnotum, með hvaða kjörum hún fáist og hver séu meginsjónarmið við úthlutunina.
Umsóknaeyðublað skal vera aðgengilegt á heimasíðu Jónshúss (jonshus.dk) og eyðublöð fást í skrifstofu Alþingis og sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn.
Í umsókn skal tekið fram hve lengi umsækjandi æski afnota, hvaða tímabil, og að hvaða verkefnum hann hyggist vinna.
5. gr.
Fræðimenn sem vinna að verkefnum í Kaupmannahöfn eða nágrenni sitja fyrir, en að öðru leyti skal hafa hliðsjón af fræðilegu og hagnýtu gildi verkefnis og að sem eðlilegust skipting sé milli fræðisviða og kynja.
Afnotaréttur skal að jafnaði vera tveir til þrír mánuðir. Úthlutunarnefndin getur vikið frá því eftir ástæðum.
Úthlutunarnefndinni er heimilt að leita álits sérfræðinga um umsækjendur og þau verkefni sem þeir hyggjast vinna að ef hún telur þörf á.
6. gr.
Skrifstofa Alþingis lætur nefndinni í té þá aðstoð sem þörf er á. Skal einn starfsmanna hennar vera ritari nefndarinnar.
Kostnaður af störfum nefndarinnar greiðist af fjárveitingum til Jónshúss.
7. gr.
Úthlutunarnefndin getur sett sett sér nánari starfsreglur. Þær skulu kynntar forsætisnefnd Alþingis og stjórn Húss Jóns Sigurðssonar.
8. gr.
Þegar úthlutun liggur fyrir skal hún send forseta Alþingis og stjórn Húss Jóns Sigurðssonar og síðan birt opinberlega.
9. gr.
Reglur þessar eru samþykktar í forsætisnefnd Alþingis 27. mars 2006 og gilda við uthlutun íbúðarinnar 2006-2007. Jafnframt falla brott fyrri reglur frá 2. júlí 1991.
