3.5.2007

Úthlutun fræðimannsíbúðar Húss Jóns Sigurðssonar 2007-2008.

Alls bárust að þessu sinni 14 umsóknir. Sjö fræðimenn fá afnot af íbúðinni.

 

Úthlutunarnefnd fræðimannsíbúðar samkvæmt reglum um Hús Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn hefur lokið störfum og úthlutað íbúðinni frá september 2007 til ágústloka 2008.

 

Í úthlutunarnefndinni eiga sæti Jakob Yngvason prófessor, formaður, Anna Agnarasdóttir prófessor, og Hrafnhildur Stefánsdóttir lögfræðingur. Ritari nefndarinnar er Þorsteinn Magnússon, aðstoðarskrifstofustjóri (stjórnsýsla).
Alls bárust nefndinni að þessu sinni 14 umsóknir.
Sjö fræðimenn fá afnot af íbúðinni, sem hér segir:

Anna Þ. Þorgrímsdóttir  til að rannsaka íslenska forngripi í Þjóðminjasafni Danmerkur.
Ásmundur G. Vilhjálmsson  til að vinna að riti um skattarétt.
Björg Thorarensen  til að vinna að rannsókn á mannréttindaákvæðum íslensku stjórnarskrárinnar.
Brynhildur Þórarinsdóttir  til að vinna að athugun á notkun barnabóka í dönskum skólum.
Jón Þ. Þór  til að rannsaka og vinna rit um ævi Jóns Vigfússonar („Bauka-Jóns“) Hólabiskups.
Oddur Benediktsson  til að rannsaka og vinna rit um sögu tölvuvæðingar á Íslandi.
Soffía Birgisdóttir  til að vinna að rannsókn á ævi Guðrúnar Sveinbjarnardóttur.

Fræðimannsíbúðin í Kaupmannahöfn, tengd nafni Jóns Sigurðssonar, er skammt frá Jónshúsi, í Sankt Pauls Gade 70. Fræðimaður hefur vinnustofu í Jónshúsi.

 

(3. maí 2007.)