Í kjallara eru snyrtingar, lítill salur, geymslur, ræstiherbergi og kynding.
Drykkjarsjálfsalar og setaðstaða er til afnota
fyrir gesti hússins, m.a. þegar salurinn á 1. hæð er upptekinn.1. hæð:
Salur, félagsheimili:
Aðalsalur Jónshúss rúmar 60 - 80 manns í sæti og inn af salnum er lítil
setustofa/fundaherbergi.
Við salinn er ágætt eldhús. Geymsla.
2. hæð:
Umsjónarmaður:
Skrifstofa umsjónarmanns er á 2. hæð og er síminn 33137997,
netfang: jonshus@mail.tele.dk.
Umsjónarmaður hefur umsjón og eftirlit með viðhaldi og rekstri hússins og
fræðimannsíbúðar, raðar niður dagskrá hússins o.s.frv. Umsjónarmaður
Jón R. Runólfsson er búsettur á 4. hæð hússins.
Fundaherbergi 1:
Fundaaðstaða fyrir um það bil 20 manns.
Safnaðarnefndarfundir, fermingarfræðsla, stjórnarfundir osfrv.
Fundaherbergi 2:
Fundaaðstaða fyrir um það bil 10 - 12 manns.
Stjórnafundir, nefndafundir og þ.h.
Hafnarpóstur:
Íslendingafélagið hefur til umráða lítið vinnuherbergi
fyri útgáfu Hafnarpóstsins og fl.
Ljósritun:
Ljósritunarvél,
prentari og þ.h. tæki
Vinnustofa fræðimanns:
Fræðimaður sem býr í fræðimannsíbúð hverju sinni hefur til
afnota vinnustofu á 2. hæð.
3. hæð:
Sýning um Jón Sigurðsson:
Sýning um Jón
Sigurðsson er opin : sjá Dagskrá. Annars í samráði
við umsjónarmann í síma 33137997
Bókasafn:
Á tímabilinu frá byrjun september til 17. júní er bókasafn Íslendinga í
Kaupmannahöfn opið á miðvikudögum milli kl. 18.00 og 20.00.
4. hæð:
Íbúð umsjónarmanns.