Forseti Alþingis
Forseti Alþingis
Frá hinu fyrsta endurreista Alþingi var Jón Sigurðsson potturinn og pannan í öllum þess störfum. Það voru hans skoðanir sem hvað mest mótuðu þingið fyrstu árin og má segja að andi hans hafi svifið þar yfir vötnum allt til þessa dags. Hann var 10 sinnum kjörinn forseti þingsins og hefur enginn maður gegnt þeirri stöðu jafnlengi.
