• Brjóstmynd af Jóni Sigurðssyni
    Brjóstmynd af Jóni Sigurðssyni
    Brjóstmynd af Jóni Sigurðssyni er eftir norska myndhöggvarann Brynjulf Larsen Bergslien (1830–1898). Brjóstmyndin var gerð að frumkvæði vina Jóns Sigurðssonar en þeir fengu Bergslien til verksins í tilefni af sextugsafmæli Jóns. Brjóstmyndin úr marmara er í Alþingishúsinu en úr gifsi í Jónshúsi.

Jón Sigurðsson

Jón Sigurðsson var fæddur á Hrafnseyri við Arnarfjörð 17. júní árið 1811. Foreldrar hans voru Sigurður Jónsson, prestur þar, og kona hans, Þórdís Jónsdóttir. Jón fór úr foreldrahúsum 18 ára gamall og stundaði nám og störf í Reykjavík um nokkurra ára bil.

Rúmlega tvítugur hélt hann til Kaupmannahafnar þar sem hann hóf nám við Kaupmannahafnarháskóla. Þar sinnti hann, samhliða námi, ýmsum störfum og hugðarefnum, m.a. útgáfu Nýrra félagsrita.

Jón tók sæti á endurreistu Alþingi 1845 og sigldi þá til Íslands eftir að hafa dvalið samfellt í 12 ár í Kaupmannahöfn. Hann var þingmaður frá 1845–1879 og dvaldi þá á Íslandi meðan þing stóð, en á þessum árum kom þing saman annað hvert ár og stóð í sex vikur. Hann var frá upphafi forustumaður þingsins og lengstum forseti þess meðan hans naut við. Jón var lykilmaður í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga og beitti sér í henni hvort sem hann var staddur á Íslandi eða í Kaupmannahöfn. Jón var búsettur í Kaupmannahöfn allt frá því að hann hélt þangað til náms 1833 og til dánardags. 

Tímalína

Tímalína þar sem fræðast má um einkahagi Jóns, fræðistörf hans og stjórnmálaþátttöku,þar sem jafnframt eru tilgreindir margir af helstu viðburðum þess tíma á Íslandi, í Danmörku og víðar.

Sjá nánari upplýsingar um líf og stöf Jóns Sigurðssonar á vefnum jonsigurdsson.is