Fimmtudagur 12. maí
Fjölbreytt dagskrá verður í Jónshúsi fimmtudaginn 12. maí.
Mömmu/bumbu hittingur
Klukkan 10:00 – 13:00
Mæður og verðandi mæður velkomnar.
Nánari upplýsingar um viðburðinn hér.
Nánari upplýsingar um Bumbuhópinn er að finna hér.
”Hálendið, fjársjóður Íslands og helsta aðdráttarafl”
Klukkan 17:00 – 19:00
Allir velkomnir - aðgangur ókeypis
Þóra Ellen Þórhallsdóttir prófessor hefur undanfarin ár rannsakað landslag á Íslandi og sérstaklega á hálendinu; hvað einkennir landslagið á hálendinu, hvernig má flokka það og hvernig er það í samanburði við önnur svæði í heiminum?
Þetta mun Þóra Ellen fjalla um í Jónhúsi fimmtudaginn 12. maí n.k. kl. 17.00. Þóra Ellen mun skýra mál sitt með ljósmyndum sem hún sjálf hefur tekið.
Nánar um viðburðinn hér.
Prjónakaffi – Garnaflækjunnar
Klukkan 19:00 – 22:00
Allir velkomnir- aðgangur ókeypis
Kaffi og kaka á 25 kr.
Á fimmtudaginn fáum við að prófa stuðningspúðan Epli frá http://www.bara123.is.
Skráning og nánar um viðburðinn hér .