Fræðslufundur
Á morgun miðvikudag kl.15:30 fær hópurinn góðan gest, Björg Magnúsdóttir mun vera með fyrirlestur og að honum loknum verða umræður. Björg hefur starfað sem starfsmanna- og skrifstofustjóri í stóru þjónustufyrirtæki í Danmörku í rúmlega 10 ár og hefur mikla reynslu af ráðningarferlinu í Danmörku. Hún hefur leiðbeint við gerð atvinnuumsókna, uppfærslur á ferilskrám, og um umsóknatækni.
Vonandi geta sem flestir mætt í Jónshús og fengið aðstoð og hvatningu.
Allir velkomnir