28.4.2016

Framundan í Jónshúsi

Föstudagur 29. apríl

Félagsvist

Félagsvist (ICELANDAIR-vistin) Húsið opnar klukkan 19:00 - stundvíslega kl. 19:30 er byrjað að spila. Takmarkaður fjöldi þátttakenda og nauðsynlegt er að tilkynna þátttöku, eigi síðar en miðvikudagskvöldið 27. apríl, með því að senda tölvupóst á netfangið hér.

Aðgangur er ókeypis, en veitingar eru til sölu. Hægt er að greiða með reiðufé og MobilePay.


Sunnudagur 1. maí

Sunnudagaskóli klukkan 13:00 til 14:00.

Sunnudagaskolinn-1.mai


Þriðjudagur 3. maí

Námskeið

Þorbjörg Hafsteins næringarþerapisti, rithöfundur og yogakennari verður með námskeið.

Nánar um námskeiðið - Detox Prógram & Yin Yoga með Tobbu Í Kaupmannahöfn.


Sunnudagur 8. maí

12801234_10207667948949749_8492080848866233752_n

Sunnudagsbröns 

Hlaðborð með íslensku ívavi.

Á hlaðborðinu er meðal annars: Nýbakað seytt rúgbrauð, íslenskur reyktur lax, íslenskt smjör, flatkökur með hangikjöti, pönnukökur, skyr, SS pylsur, síld, heimabakað brauð og fleira og fleira. 
Nánar um viðburðinn  hér.

Skráning með greiðslu yfir 2.maí ( síðast var uppselt). Mobilpay 2122 3404 eða leggja inn á reikning, reg.nr. 5338 kontonr. 0247 204.


Þriðjudagur 10. maí

Vinnustofa í samningatækni

Skráning og nánar um viðburðinn - 

Workshop: Becoming a Better Negotiator (Copenhagen)

Námskeiðið fer fram á ensku.