15.4.2014

Hátíð Jóns Sigurðssonar

Hátíð Jóns Sigurðssonar verður haldin í Jónshúsi á sumardaginn fyrsta, 24. apríl 2014, kl. 17.00. Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta verða afhent af því tilefni. Markmiðið með hátíðinni er að heiðra minningu Jóns Sigurðssonar og halda á loft verkum hans og hugsjónum.

Dagskrá:
• Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, setur hátíðina.
• Kórinn Staka flytur íslenska tónlist.
• Guðrún Nordal, forstöðumaður Árnastofnunar, flytur hátíðarræðu.
• María Ösp Ómarsdóttir leikur á þverflautu.
• Forseti Alþingis afhendir Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta.
• Kórinn Staka flytur lag í tilefni sumardagsins fyrsta.

Léttar veitingar að lokinni dagskrá.
Karl M. Kristjánsson, formaður stjórnar Húss Jóns Sigurðssonar, stjórnar dagskrá