25.9.2015

ICELANDAIRvist

Fyrsta félagsvist (ICELANDAIR-vistin) haustsins verður föstudagskvöldið 25. september, stundvíslega kl. 19:30, í Jónshúsi. Aðalvinningur vetrarins að þessu sinni er gjafabréf frá Icelandair að verðmæti 4.000 DKK. Takmarkaður fjöldi þátttakenda og nauðsynlegt er að tilkynna þátttöku, eigi síðar en miðvikudagskvöldið 23. september, með því að senda tölvupóst á netfangið hér.

Aðgangur er ókeypis, en veitingar eru til sölu. Athugið að ekki er tekið við greiðslukortum í Jónshúsi.