6.5.2011

Úthlutun fræðimannsíbúðar 2011-2012

Fréttatilkynning

Fréttatilkynning
frá skrifstofu Alþingis,
6. maí 2011

Úthlutun fræðimannsíbúðar Húss Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn 2011-2012

Úthlutunarnefnd fræðimannsíbúðar samkvæmt reglum um Hús Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn hefur lokið störfum og úthlutað íbúðinni frá ágústlokum 2011 til ágústloka 2012.
Í nefndinni eiga sæti Anna Agnarsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, formaður, Ágúst Einarsson, prófessor við Háskólann á Bifröst, og Kristinn Ólason, rektor Skálholtsskóla. Ritari nefndarinnar er Jörundur Kristjánsson, alþjóðaritari á skrifstofu forseta Alþingis.

Alls barst nefndinni að þessu sinni 41 umsókn.
Tíu fræðimenn fá afnot af íbúðinni, sem hér segir:

  • Árni Heimir Ingólfsson til að vinna verkefni um tónlist í íslenskum handritum í Kaupmannahöfn, og tónlistartengsl Íslands og Danmerkur á 17. öld.
  • Birna Arnbjörnsdóttir til að vinna verkefni um aðlögun innflytjenda og menntun tungumálakennara í fullorðinsfræðslu.
  • Guðbjörg Vilhjálmsdóttir til að vinna verkefnið „Habitus og framtíðarstörf“.
  • Guðný Björk Eydal til að vinna verkefni um feðrahlutverk á Norðurlöndum, norræna fjölskyldustefnu og framkvæmd félagsþjónustu í Kaupmannahöfn.
  • Katrín Ólafsdóttir til að vinna verkefnið „Virkar vinnumarkaðsaðgerðir: Hvað geta Íslendingar lært af Dönum?“.
  • Kristján Sveinsson til að vinna verkefni um sjómælingar Dana við Ísland 1784-1914, útgáfu sjókorta og leiðsögubóka.
  • Ólafur Ásgeirsson til að vinna að afritun verslunarbóka frá 18. öld.
  • Ragnhildur Helgadóttir til að vinna verkefni um stjórnskipun í mótun: áhrif stjórnskipunarréttar ESB á danska stjórnskipun.
  • Sverrir Tómasson til að vinna verkefni um útgáfur Njáls sögu, aðallega á 19. öld.
  • Torfi H. Tulinius til að vinna verkefni um Íslendingasögur sem listaverk frá Sturlungaöld.


Fræðimannsíbúðin í Kaupmannahöfn, tengd nafni Jóns Sigurðssonar, er skammt frá Jónshúsi, í Sankt Pauls Gade 70. Fræðimaður hefur vinnustofu í Jónshúsi.