8.6.2011

Einar Már Guðmundsson

í Jónshúsi 16. júní

Einar Már Guðmundsson kynnir nýútkomna bók sína Bankastræti núll í Jónshúsi, fimmtudagskvöldið 16. júní kl. 20. Húsið opnar kl. 19:15. Aðgangur ókeypis.

Léttar veitingar til sölu og einnig verður hægt að kaupa bókina á hagstæðu verði (einungis er tekið við reiðufé – næsti hraðbanki er á Østerport St.). Bókmenntakvöldið er skipulagt af PILK (Projektgruppen Islandsk Litteratur i København) í samstarfi við Jónshús.

Bankastræti núll

„Á Íslandi er veruleikinn einsog nýtt bókmenntaform. Hann slær öllum skáldskap við. Öfgafullir súrrealistar hljóma einsog raunsæjar kerlingar, glæpasögur einsog vögguvísur og furðusögur hafa ekkert í ímyndunarafl útrásarvíkinganna að gera … Ísland er einsog raunveruleikaþáttur, eldgos í beinni útsendingu og fjármálakreppa sem breytir bankastjórum í eftirlýsta menn.“

Bankastræti núll, sem kom út 26. maí síðastliðinn, hefur undirtitilinn „sögur úr veruleikanum“. Þar skrifar einn fremsti höfundur okkar Íslendinga um samband þjóðlífsins og menningarinnar – ekki ólíkt því og hann gerði í Hvítu bókinni árið 2009.

Hér er viðfangsefnið þrenning bókvitsins, verkvitsins og siðvitsins og hvernig henni hefur verið sundrað, ofurvald fjármálaheimsins, afþreying og reyfarar, eldfjöll, bankar og byltingar. Er annars hægt að kaupa menninguna?
___________________________________________

Jónshús
Østervoldgade 12
1350 København K
www.jonshus.dk

PILK - Projektgruppen Islandsk Litteratur i København
www.islandsklitteratur.dk