Jónshús Um JónshúsFræðimannsíbúðTenglar
Jón SigurðssonAlþingi

Hús Jóns Sigurðssonar
Islands Kulturhus

Øster Voldgade 12
1350 København K
Simi: 33 13 79 97
jonshus@mail.tele.dk
 
BókasafniðFélagsstarfsemiDagskráSendiráðsprestur MinningarsýningHúsaskipan
 

Málverk af Jóni Sigurðssyni eftir danska málarann August Schiött.

 

 

 
       
  Jón Sigurðsson  
 
Stúdentspróf og verslunarstörf

Jón var elstur þriggja systkina, en hin voru Jens og Margrét. Tæplega 18 ára gamall fór Jón úr foreldrahúsum til Reykjavíkur, þar sem hann tók stúdentspróf með afburða lofi, en faðir hans hafði kennt honum þann skólalærdóm sem til þurfti. Í Reykjavík stundaði Jón verslunarstörf hjá föðurbróður sínum, Einari Jónssyni faktor, um hríð. Þar kynntist hann konuefni sínu, Ingibjörgu, dóttur Einars.

Í biskupsgarði
Vorið 1830 gerist Jón skrifari hjá Steingrími biskupi Jónssyni í Laugarnesi og var hann í vist hjá honum í þrjú ár. Ljóst er að dvöl hans hjá biskupi hafði mikil áhrif á allt lífsstarf hans síðar. Áhugi Jóns á íslenskum fræðum og öllu því sem íslenskt var, sem hann hafði fengið í æsku, blómgaðist í biskupsgarði. Þar hafði hann aðgang að stóru bókasafni og mesta safni íslenskra handrita og skjala sem þá var til í landinu. Launin hjá biskupi lagði hann fyrir.

 
   
  Nánar um Jón:  
       

 
Stúdentspróf og verslunarstörf  
  Háskólanám og aukastörf  
  Ný félagsrit  
  Endurreist Alþingi og brúðkaup  
  Sjálfstæðisbaráttan  
  Við Austurvegg