| |

Jón Sigurðsson var tíu sinnum kjörinn forseti þingsins og
hefur enginn maður gegnt þeirri stöðu jafnlengi.
|
|
| |
|
|
|
| |
Jón Sigurðsson |
|
| |
Við Austurvegg
Þau Jón og Ingibjörg bjuggu í Kaupmannahöfn
allan sinn búskap, lengst af á Øster Voldgade 8, en það kölluðu Íslendingar
við Austurvegg. Var það leiguhúsnæði og greiddi Jón fyrir það sem svaraði
rúmlega 80 þúsund krónum íslenskum í húsaleigu á mánuði, fyrir utan ljósmeti
og hita. Hiklaust má segja að heimili þeirra hjóna hafi verið félagsmiðstöð
og athvarf Íslendinga í Höfn meðan þeirra naut við. Jón og Ingibjörg voru
barnlaus, en tóku til fósturs og ólu upp Sigurð, systurson Jóns.
Óskabarn Íslands
Jón Sigurðsson andaðist í Kaupmannahöfn
7. desember 1879 eftir nokkurra mánaða erfið veikindi. Kona hans, Ingibjörg,
sem hafði verið við sjúkrabeð manns síns, lést svo níu dögum síðar. Þau hjón
hvíla í kirkjugarðinum við Suðurgötu í Reykjavík. Á silfursveig sem Íslendingar
í Höfn settu á kistu hans segir: „Óskabarn Íslands, sómi þess, sverð og skjöldur“.
|
|
| |
|
|
|
|