Jónshús Um JónshúsFræðimannsíbúðTenglar
Jón SigurðssonAlþingi

Hús Jóns Sigurðssonar
Islands Kulturhus

Øster Voldgade 12
1350 København K
Simi: 33 13 79 97
jonshus@mail.tele.dk
 
BókasafniðFélagsstarfsemiDagskráSendiráðspresturMinningarsýningHúsaskipan
 

Úr íbúð Jóns Sigurðssonar og konu hans Ingibjargar Einarsdóttur.

 

 

 
       
  Sýning um Jón Sigurðsson  
 
Á þriðju hæð er sýning sem fjallar um uppvöxt, ævi og lífsstarf Jóns Sigurðssonar og helstu áfanga í sjálfsstæðisbaráttu Íslendinga að honum gengnum, heimastjórn 1904, fullveldi 1918, stofnun lýðveldis 1944 og mikil samskipti Íslendinga og Dana síðan. Saga hússsins er rakin og greint er frá þætti Tryggva Gunnarssonar í stofnun Safns Jóns Sigurðssonar. Loks er lítil sýning tileinkuð Ingibjörgu Einarsdóttur i eldhúsi hennar.

Sýningin var aukin og endurbætt árið 2004 þegar 100 ár voru frá því að Ísland fékk heimastjórn og 200 ár frá fæðingu Ingibjargar Einarsdóttur.

Sýningin er að hluta frá 1993 en hana gerðu Bryndís Sverrisadóttir fil. kand. og Þórunn S. Þorgrímsdóttir leykmyndahönnuður. Helga Guðmundsdóttir þýddi texta á dönsku.

Sýninguna sem opnuð var 4. mars 2004 gerðu Guðjón Friðriksson sagnfræðingur og Björn G. Björnsson sýningahönnuður hjá List og sögu ehf. Lars H. Andersen þýddi texta á dönsku.

Þjóðskjalasafn Íslands lánaði skjöl og Þjóðminjasafn Íslands lagði til muni úr Safni Jóns Sigurðssonar.

Alþingi kostaði gerð sýninganna.

Sýning um Jón Sigurðsson er opin á þriðjudögum,miðvikudögum, fimmtudögum og föstudögum kl. 12.00 - 20.00, á laugardögum og sunnudögum kl. 10.00 - 16.00 og í samráði við umsjónarmann í síma 33137997