Starfsemi

Starfsemi í Jónshúsi í Kaupmannahöfn er margvísleg. Á þriðju hæð hússins er sýning um Jón Sigurðsson, líf hans og störf. Í kjallara er bókasafn íslendinga í Kaupmannahöfn. Þá er í húsinu 2 íbúðir fyrir íslenska fræðimenn og vinnustofur. Á fyrstu hæð er samkomusalur þar sem oft eru auglýstar samkomur og sýningar íslenskra listamanna.

Þá er í húsinu aðstaða fyrir félagsstarfsemi þeirra fjölmörgu Íslendinga sem búsettir eru á Kaupmannahafnar-svæðinu. Meðal annars funda og æfinga- og kennsluaðstaða Íslendingafélagsins, íslenska safnaðarins, Stöku, ísl. kvennakórsins, íslenska skólans, sunnudagaskólans ofl. Í húsinu er einning starfsaðstaða fyrir íslensk fyrirtæki.