Húsaskipan

Húsaskipan

Hús Jóns Sigurðssonar eða Jónshús stendur við Øster Voldgade 12. Á þeim tíma sem Jón Sigurðsson bjó í húsinu var það númer 8. Hér má sjá kort af nágrenni Jónshúss: Kort

Kjallari:
Í kjallara eru snyrtingar, lítill salur, geymslur, ræstiherbergi og kynding. Drykkjarsjálfsalar og setaðstaða er  til afnota fyrir gesti hússins, m.a. þegar salurinn á 1. hæð er upptekinn.

1. hæð:
Salur, félagsheimili:
Aðalsalur Jónshúss rúmar 60 - 80 manns í sæti og inn af salnum er lítil setustofa/fundaherbergi. Við salinn er ágætt eldhús. Geymsla.

2. hæð:
Umsjónarmaður:
Skrifstofa umsjónarmanns er á 2. hæð og er síminn 33137997, netfang: jonshus@mail.tele.dk. Umsjónarmaður hefur umsjón og eftirlit með viðhaldi og rekstri hússins og fræðimannsíbúðar, raðar niður dagskrá hússins o.s.frv. Umsjónarmaður Jón R. Runólfsson er búsettur á 4. hæð hússins.

Fundaherbergi 1:
Fundaaðstaða fyrir um það bil 20 manns. Safnaðarnefndarfundir, fermingarfræðsla, stjórnarfundir osfrv.

Fundaherbergi 2:
Fundaaðstaða fyrir um það bil  10 - 12 manns. Stjórnafundir, nefndafundir og þ.h.

Ljósritun:
Ljósritunarvél, prentari og þ.h. tæki

Vinnustofa fræðimanns:
Fræðimaður sem býr í fræðimannsíbúð hverju sinni hefur til afnota vinnustofu á 2. hæð.

3. hæð:
Sýning um Jón Sigurðsson:
Sýning um Jón Sigurðsson er opin þriðjudaga kl. 10.00 – 20.00 miðvikudaga kl. 12.00 – 20.00, fimmtudaga og föstudaga kl. 12.00 – 18.00, laugardaga og sunnudaga kl. 10.00 – 16.00

Bókasafn:
Upplýsingar um opnunartíma má finna í atburðum. Ef nauðsyn krefur er hægt að hafa samband við umsjónarmann Jónshúss í síma 33137997

4. hæð:
Íbúð umsjónarmanns.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica