Reglur um Jónshús
R E G L U R
um Hús Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn.
1. grein
Hús Jóns Sigurðssonar á Østervoldgade 12 í Kaupmannhöfn, sem er í eigu Alþingis, skal ávallt nýtt þannig að minningu Jóns Sigurðssonar forseta og eiginkonu hans, Ingibjargar Einarsdóttur, megi verða til sæmdar.
2. grein
Húsrýminu skal ráðstafað sem hér segir:
- Á þriðju hæð hússins, þar sem var íbúð Jóns og Ingibjargar 1852-1879, skal vera sýning til minningar um Jón, líf hans og starf. Að öðru leyti skal með viðeigandi hætti minnt á ævi og starf Jóns Sigurðssonar og konu hans í húsinu.
- Fyrstu hæð hússins og kjallara skal hagnýta til menningar- og fræðslustarfsemi. Þar skal einnig eftir föngum veitt aðstaða til kynningar á landi og þjóð, menningu Íslendinga og framleiðsluvörum.
- Í húsinu skal vera aðstaða fyrir bókasafn og starfsemi Félags Íslendinga í Kaupmannahöfn, Stúdentafélagsins og annarra áhugafélaga sem hafa fasta starfsemi í Danmörku.
- Fræðimaður, sem hefur afnot af íbúðinni í Skt. Paulsgade 70, skal hafa vinnuaðstöðu í húsinu.
- Íbúð á fjórðu hæð er til afnota fyrir umsjónarmann hússins.
3. grein
Forseti Alþingis fer með æðsta vald í málefnum hússins, sbr. 9. gr. þingskapa.
Forseti skal kynna forsætisnefnd rekstur hússins árlega og bera málefni þess undir nefndina eftir því sem þurfa þykir.
4. grein
Forseti Alþingis skipar, að höfðu samráði við forsætisnefnd, þrjá fulltrúa í stjórn hússins til fjögurra ára í senn. Skipunin fellur þó niður þegar nýr forseti er kjörinn.
Stjórn hússins hefur umsjón með rekstri þess og notkun, en leita skal hún samþykkis forseta við öllum meiri háttar ákvörðunum um rekstur þess.
Stjórn hússins hefur einnig umsjón með rekstri og viðhaldi fræðimannsíbúðar í Skt. Paulsgade 70 í Kaupmannahöfn, sbr. reglur forsætisnefndar um íbúðina.
Stjórn hússins skal gera fjárhagsáætlun fyrir Jónshús og fræðimannsíbúð samkvæmt reglum sem forsætisnefnd setur.
5. grein
Stjórin skal leitast við að hafa gott samstarf við notendur hússins og samtök þeirra.
Stjórnin skal tvisvar á ári, eða svo oft sem þurfa þykir, boða til samráðsfunda með fulltrúum félaga og samtaka sem tengjast Íslandi og óska eftir föstum afnotum af sameiginlegri aðstöðu í húsinu.
6. grein
Stjórn hússins ræður umsjónarmann og annað nauðsynlegt starfsfólk hússins í samræmi við skipulag og fjárveitingar til rekstrarins. Hússtjórnin setur starfsfólki erindisbréf.
7. grein
Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn annast fjárreiður Jónshúss í samráði við skrifstofu Alþingis.
8. grein
Reglur þessar öðlast gildi 1. apríl 2006 og um leið falla úr gildi reglur frá 24. okt. 1994, með breytingu 23. sept.1996. Við gildistöku reglnanna falla jafnframt úr gildi samningar sem gerðir hafa verið á grundvelli eldri reglna.
Reglur þessar eru settar á grundvelli gjafabréfs Carls Sæmundsen stórkaupmanns, dags. 17. júní 1966, þar sem hann gefur íslenska ríkinu húsið Austurvegg (Østervoldgade) 12 í Kaupmannahöfn og felur það forsjá Alþingis.
(Samþykkt á fundi forsætisnefndar 28. mars 2006.)
