Jónshús Um JónshúsFræðimannsíbúðTenglar
Jón SigurðssonAlþingi

Hús Jóns Sigurðssonar
Islands Kulturhus

Øster Voldgade 12
1350 København K
Simi: 33 13 79 97
jonshus@mail.tele.dk
 
BókasafniðFélagsstarfsemiDagskráSendiráðspresturMinningarsýningHúsaskipan
 

Auk sýningar um æfi og störf Jóns Sigurðssonar er húsið fyrst og fremst rammi um félagsstarfsemi þeirra fjölmörgu Íslendinga sem búsettir eru á Kaupmannahafnar- svæðinu.

 

 

 
       
  Um Jónshús  
 
Jónshús í Kaupmannahöfn hefur verið í eigu Alþingis frá árinu 1967 er Carl Sæmundsen stórkaupmaður gaf það í minningu Jóns Sigurðssonar og Ingibjargar Einarsdóttur. Þau hjón bjuggu í húsinu frá árinu 1852 allt til dauðadags, 1879. Húsið er við Øster Voldgade 12. Árið 1970 hófst rekstur í húsinu. Þar er nú félagsheimili Íslendinga í Kaupmannahöfn, minningarsafn um Jón Sigurðsson og Ingibjörgu og bókasafn. Einnig hafa Stúdentafélagið, Íslendingafélagið, íslenski söfnuðurinn og sendiráðspresturinn aðstöðu í húsinu. Þá er íbúð umsjónarmanns í húsinu, en þar var áður íbúð sendiráðsprests meðan hann gegndi jafnframt stöðu umsjónarmanns hússins.

Árið 1991 keypti Alþingi íbúð við Skt. Paulsgade 70 fyrir fræðimann, en fræðimenn höfðu haft íbúð á 2. hæð í Jónshúsi til þess tíma.

Stjórn Jónshúss ber ábyrgð á rekstri Jónshúss í umboði forseta Alþingis og forsætisnefndar.

Reglur um Hús Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn (pdf skjal).