FRÉTTABRÉF FRÁ JÓNSHÚSI

Menning, tónlist og íslenskt samfélag í Kaupmannahöfn

TÓNLEIKAR – BERGMÁL FJALLANNA

NÝJUNG Í JÓNSHÚSI – KARLAKAFFI

HIN ÁRLEGA SKÖTUVEISLA ÍSLENDINGAFÉLAGSINS

FRÉTTABRÉF FRÁ JÓNSHÚSI

Menning, tónlist og íslenskt samfélag í Kaupmannahöfn

TÓNLEIKAR – BERGMÁL FJALLANNA
Föstudaginn 13. nóvember kl. 20.00

Djasspíanóleikarinn, tónskáldið og söngkonan Sigurdís Tryggvadóttir kynnir sína fyrstu plötu, Bergmál fjallanna, á tónleikum í Jónshúsi.

875104297_18643438606042164_5976477495851476057_n

Platan á rætur sínar að rekja til norðlenskrar sveitar þar sem Sigurdís ólst upp. Í tónsmíðum sínum sækir hún innblástur í íslenska náttúru, árstíðaskipti, birtu og myrkur. Hún vinnur jafnframt með fjölskylduarfinn, og ljóð og lög Jónasar Tryggvasonar (1916–1983), afabróður síns.

Þótt Jónas hafi látist áratug áður en Sigurdís fæddist tengjast þau í gegnum sameiginlega heimahaga, fjölskyldubönd og ástríðu fyrir listsköpun. Sigurdís hefur samið tónlist við persónuleg og myndræn ljóð hans.

Með Sigurdísi leika kontrabassaleikarinn Mariusz Praśniewski og trommuleikarinn Péter Horváth. Þau eru öll búsett í Kaupmannahöfn.

Miðaverð: 90 DKK. Miðar seldir við innganginn. Tónleikarnir vara um eina klukkustund.

Nánari upplýsingar um viðburðinn hér.



NÝJUNG Í JÓNSHÚSI –
KARLAKAFFI
Þriðjudaginn 17. nóvember kl. 13.00

Íslenski söfnuðurinn í Danmörku, í samstarfi við Jónshús og góða sjálfboðaliða, býður íslenskum karlmönnum upp á nýjan samveruvettvang – KARLAKAFFI.

9d3d65c0-8bea-461e-a835-a57cfa073474

Við ætlum að hittast einu sinni í mánuði, á þriðjudögum kl. 11.00 – 13.00, njóta góðs íslensks heimilismatar og spjalla saman á íslensku. Brugðið verður á leik, gamansögur sagðar, spurningakeppnir haldnar og jafnvel fengnir gestir til að segja frá áhugaverðum málefnum.

Þeir sem hafa gaman af skák geta mætt kl.10.15 og dregið fram taflborðið.

Viðar Birgisson sér um að töfra fram matinn og kostar máltíðin aðeins 50 DKK.

Í fyrsta karlakaffinu verður boðið upp á íslenska kjötsúpu með dýrindis lambakjöti úr Skagafirði og tilheyrandi grænmeti. Kaffi og íslenskt sælgæti í eftirrétt!

Mikilvægt er að skrá sig fyrirfram svo hægt sé að áætla matinn.

Skráning á viðburðinn hér.

Látið orðið berast og bjóðið íslenskum karlmönnum að koma í góðan félagsskap. 


HIN ÁRLEGA SKÖTUVEISLA ÍSLENDINGAFÉLAGSINS
Sunnudaginn 13. desember í Føroyahúsinu

Stjórn Íslendingafélagsins í Kaupmannahöfn býður Íslendinga nær og fjær, sem og alla velunnara Íslands, hjartanlega velkomna í hina árlegu skötuveislu.

836322365_1439083241765002_7137955576789079704_n

  • Húsið verður opnað kl. 12.00.
  • Borðhald hefst kl. 12.30.
  • Dagskrá lýkur kl. 15.00.

Miðaverð:

  • Fullorðnir: 290 DKK.
     Innifalið er skata eða saltfiskur, einn brennivínssnaps, kaffi og risalamande.
  • Börn 5–12 ára: 120 DKK.

Drykkjarvörur verða seldar á barnum.

Miðasala er hafin og við hvetjum ykkur til að tryggja ykkur miða sem fyrst.

Kaupa miða hér.

Við hlökkum til að taka á móti ykkur og eiga saman notalega stund í góðum félagsskap og jólaskapi!

Kær kveðja,
Stjórn Íslendingafélagsins í Kaupmannahöfn