Formleg opnun listsýningar laugardaginn 13. nóvember kl. 15.30 - 18.00 í Jónshúsi
Fjóla Jóns og Trausti Traustason (Tson) opna sýninguna "Við erum öll öðruvísi”
Allir velkomnir
Boðið verður upp á léttar veitingar og tónlistaraðurinn Arnar Arna flytur nokkur lög á gitar.
Þessa daga er mikið um að vera í Jónshúsi. Margir fastir liðir þar sem Íslendingar mæta vikulega, til dæmis á kóræfingar, í skóla eða annað skemmtilegt.
Íslendingar geta fengið húsið lánað til að halda viðburði í samráði við umsjónarmann. Nokkrum sinnum á ári fá listamenn salinn lánaðan og setja upp sýningu sem stendur nokkrar vikur í senn. Næsta sýning verður formlega opnuð á laugardaginn 13. nóvember kl. 15.30.
Fjóla Jóns og Trausti Traustason (Tson) opna sýninguna "Við erum öll öðruvísi”
Allir velkomnir
Boðið verður upp á léttar veitingar og tónlistaraðurinn Arnar Arna flytur nokkur lög á gitar.
Nánar um viðburðinn hér.

Aðeins um sýninguna og listamennina
Þetta skrifa þau Fjóla og Trausti á facebook, þar sem viðburðurinn er kynntur, eins og hér má sjá:
„Eins og titill sýningarinnar vísar í, þá erum við svo sannarlega öll öðruvísi þó við viljum stundum meina að við séum eins. Þá kemur stóra spurningin eins og hver eða hvað? Við ætlum að leyfa þér kæri áhorfandi að ákveða hvort þú sért öðruvísieins eða bara öðruvísi og kannski finnur þú þig á vegg í Jónshúsi 13. Nóvember.
Í verkum Fjólu er það húmorinn og litagleði sem ráða ríkjum, og má þar nefna karktera eins og Gleðigjafann mikla og margar aðrar skrítnar skrúfur. Fjóla er mikill húmoristi og er mjög fljót að sjá spaugilegu hliðina á lífinu og þá sérstaklega því sem viðkemur að henna sjálfri og gerir hún óspart grín af sjálfri sér sem endurspeglast í verkum hennar. Enda gætu margir að þessum karakterum verið hún sjálf á einhverjum tímapunktum í lífinu, segir Fjóla.
Fjóla Jóns er fædd og uppalin í Keflavík, en er búsett í Kaupmannhöfn í dag. Fjóla nam myndlist við Myndlistarskólann í Reykjavík, ásamt því að hafa verið undir handleiðslu margra frábærra listamanna og má þar m.a nefna Kjartan Guðjónsson og Reynir Katrínar.
Trausti Traustason (Tson)
Trausti er reyndar ekki eins skemmtilegur og Fjóla segir hann og hlær, en hafa þau unnið að list og búið saman í níu ár.
Innblástur í verk sín fær Trausti fyrst og fremst úr náttúrunni enda er hann mikill dýravinur og náttúruverndarsinni. Flest verka hans einkennast af mikilvægi þess að allt í náttúrunni hafisinn tilgang og þurfum við nú sem aldrei fyrr að aðlaga okkur að henni en ekki náttúran að okkur, því ef hringur lífskeðjunnar deyr, deyjum við með.
"Only when the last tree has died and the last river has been poisoned
and the last fish has been caught will we realize that we can not eat
money."
– Chief Seattle
Trausti er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum og er búsettur í Kaupmannahöfn í dag. Trausti útskrifaðist frá MHÍ árið 1987.
Fjóla og Trausti hafa sett upp fjölda einka- og samsýningar.“