Fréttabréf Jónshúss

Fræðimaður segir frá, auglýst er eftir umsóknum um dvöl fræðimanns.

 

Fræðimaður segir frá!

Á morgun þriðjudag 9. október kl. 17:00.

Dr. Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir og fræðimaður í Jónshúsi ætlar að fjalla um Streituskólann- kulnun í starfi og sjúklega streitu.

Nánar um viðburðinn hér.

Aller velkomnir


Auglýst er eftir umsóknum um dvöl í íbúð fræðimanns í Jónshúsi 2019. 

Íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn, samkvæmt reglum um hús Jóns Sigurðssonar, er laus til afnota tímabilið 2. janúar 2019 til 17. desember 2019. Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist skrifstofu Alþingis eigi síðar en mánudaginn 29. október næstkomandi. Nánari upplýsingar er að finna hér.

Fræðimenn, sem hyggjast stunda rannsóknir eða vinna að verkefnum í Kaupmannahöfn, geta sótt um afnot af íbúðinni, sem er á 4. hæð Jónshúss. Íbúðin er tveggja herbergja og fylgir henni allur nauðsynlegasti heimilisbúnaður. Afnotin eru endurgjaldslaus, en þeim sem fá úthlutað ber þó að greiða fyrir þrif íbúðarinnar og rekstrarkostnað, alls kr. 60.000.

Dvalartími í íbúðinni fer eftir umfangi verkefnis og öðrum atvikum, en er þó venjulega ekki lengri en tveir mánuðir. Úthlutunarnefnd ætlast til að dvalargestir nýti úthlutaðan tíma sinn að fullu við störf í Kaupmannahöfn. Við úthlutun íbúðarinnar er höfð hliðsjón af eftirfarandi atriðum: 

  1. Að verkefnið hafi fræðilegt eða hagnýtt gildi og þyki áhugavert.
  2. Að umsókn sé vandlega unnin.
  3. Að sem eðlilegust skipting sé milli kynja og fræðigreina.
  4. Að verkefnið verði ekki unnið annars staðar en í Kaupmannahöfn eða nágrenni.

Þeir sem eru í námi, þar á meðal doktorsnámi, eiga að jafnaði litla möguleika á úthlutun. Þá er höfð hliðsjón af því hvort sótt er um dvöl í fyrsta skipti, en þegar umsækjendur eru jafnsettir skulu þeir ganga fyrir sem sækja um dvöl í fyrsta skipti.

Úthlutunarnefnd ráðgerir að ljúka störfum í nóvember.

Umsóknir um íbúðina skulu vera á sérstöku eyðublaði sem nálgast má á vef Jónshúss og skulu berast skrifstofu Alþingis eigi síðar en mánudaginn 29. október næstkomandi. 

Umsóknir merkist: 

Umsókn um fræðimannsíbúð

b.t. Jörundur Kristjánsson

Skrifstofu Alþingis

101 Reykjavík.