Fullveldinu fagnað á Norðurbryggju
Í tilefni af 100 ára afmæli fullveldisins fer fram vegleg hátíðardagskrá á Nordatlantens Brygge laugardaginn 1. desember 2018 frá kl. 15-20.
Hátíðardagskráin er sniðin að öllum aldri og munu nokkrir af ástsælustu skemmtikröftum íslensku þjóðarinnar stíga á stokk.
Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis á meðan húsrúm leyfir.
Fullveldinu fagnað á Norðurbryggju
Í tilefni af 100 ára afmæli fullveldisins fer fram vegleg hátíðardagskrá á Nordatlantens Brygge laugardaginn 1. desember 2018 frá kl. 15-20.
Hátíðardagskráin er sniðin að öllum aldri og munu nokkrir af ástsælustu skemmtikröftum íslensku þjóðarinnar stíga á stokk.
Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis á meðan húsrúm leyfir.
Hér að neðan má sjá tímasetningar og dagskrá dagsins
í heild sinni, en hún fer fram vítt og breytt um bygginguna.
Salur - Vest– Efsta hæð til hægri
14:30 Húsið opnar
15:00 Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, ávarpar gesti frá Bessastöðum
Fullveldiskórinn, sameinaður kór Stöku, Kvennakórsins, Dóttur og Hafnarbræðra flytur íslenska þjóðsönginn.
Sendiherra Íslands, Benedikt Jónsson, býður gesti velkomna
Fullveldiskórinn, sameinaður kór Stöku, Kvennakórsins, Dóttur og Hafnarbræðra flytur nokkur lög
Bertel Haarder þingmaður og fv. menntamálaráðherra flytur ávarp
16:30 JóiPé X Króli rappa á íslensku
18:00 Uppistand Dóra DNA og Sögu Garðarsdóttur
19:00 Sigríður Thorlacius, Guðmundur Óskar og Snorri Helgason flytja ljúfa tóna
Salur - Øst – Efsta hæð til vinstri
15:00 Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, ávarpar gesti frá Bessastöðum16:00 Ævar vísindamaður- STÓRHÆTTULEGUR UPPLESTUR
Ævar Þór les upp úr nýjustu bókinni sinni, Þitt eigið tímaferðalag, þar sem áhorfendur munu ráða hvort upplesturinn endi ægilega vel, eða hrikalega illa!
17:15 Ævar vísindamaður – SUBBU OG SÓÐALEGAR TILRAUNIR
Brettið upp ermar því Ævar vísindamaður ætlar að blanda slím og gera reykfylltar sápukúlur!
Íslenskuskólinn í Jónshúsi sýnir vatnslitamyndir skólabarna, unnar undir yfirskriftinni ,,Hugsað heim til Íslands”
Teikniverkstæði fyrir börn
Sýningarsalur á jarðhæð og 2. hæð (1. sal)
Sýningin HÁTT OG LÁGT – Samtímalist frá Íslandi.
Sýnd eru verk frá áttunda áratug síðustu aldar til dagsins í dag eftir ellefu samtímalistamenn frá Íslandi sem vinna með ólíka miðla
16:00 Heiðar Kári Rannversson, sýningarstjóri Hátt og lágt, býður uppá leiðsögn um sýninguna
3. hæð (2. sal)
15:00-19:00 Sýndarveruleikasýning frá Skotta Film – Ísland á fullveldisárinu 1918
16:00 – 18:00 íslenskur pönnukökubakstur
Jólasveinaland – Styttur af jólasveinunum 13 ásamt Grýlu og Leppalúða
Sendiráð Íslands, Strandgade 89
16:00-18:00 Sýningin Íslenska lopapeysan – Uppruni, saga og hönnun
16:00 ,,Solar surface” - Ljósakróna Ólafs Elíassonar tendruð
15.00-20:00 Videoverki Ólafs Elíassonar varpað á framhlið sendiráðsins
Sendiráðið býður upp á kaffi og léttar veitingar frá kl. 16 á efstu hæð og 2. hæð (1. sal), ásamt pönnukökum á 3. hæð (2. sal).