Jólamarkaður í Jónshúsi

Haustfundur Dansk - íslenska viðskiptaráðsins, Jólakúluprjón, Spilavist og Jólamarkaður

Fimmtudagur 24. nóvember, klukkan 15:00 til 17:30.

Haustfundur 

Dansk-islandsk Handelskammer // Dansk-íslenska viðskiptaráðið 

2016_11_17_header-fyrir-FB[3]

Skráning og nánar um viðburðinn hér. 

Fimmtudagur 25.nóvember, klukkan 18.30. 

Jólakúluprjón

Jólatréið í Jónshúsi kemur í hús á morgun miðvikudag. Auk jólaljósa verður tréið skreytt með handgerðu jólaskrauti. T.d dæmis handprjónuðum jólakúlum. Hugmyndin er að skrautið á tréinu verði til sölu á jólamarkaðinum. Hver kúla verði seld á 50 kr. allur ágóði renni til góðgerðamála.

Ég, Halla leita til ykkar um leggja góðu málefni lið,  prjóna, hekla, sauma jólakúlu/skraut og koma með á jólatréið fyrir jólamarkaðinn sem verður 27.nóvember. 

IMG_7039

Nánar um viðburðinn er að finna hér.


Föstudagur 25. nóvember, klukkan 19:30 - 23:00.

 ICELANDAIR-vist

Takmarkaður fjöldi þátttakenda og nauðsynlegt er að tilkynna þátttöku, eigi síðar en miðvikudagskvöldið 26. október, með því að senda tölvupóst á netfangið: [email protected]

Aðgangur er ókeypis, en veitingar eru til sölu. Hægt er að greiða með reiðufé og MobilePay.

Spilavist-2016


Sunnudagur 27. nóvember, klukkan 13:00 - 17:00.

Íslenskur jólamarkaður 

Hinn árlegi jólamarkaður verður haldinn sunnudaginn 27. nóvember.
Eitt og annað íslenskt verður á boðstólnum. Auk þess verður Íslenski kvennakórinn með kaffi/kakó og vöflur með rjóma til sölu. 

Allir velkomnir 

Nánar upplýsingar um viðburðinn er að finna hér.

Jolamarkadur-2016-1


Þriðjudagur 29. nóvember, klukkan 11:30 - 13:00.

Íslendingar í atvinnuleit 

Verkefnahittingur - Hverning á að lesa atvinnuauglýsinguna

Síðasti hittingurinn okkar fyrir jól. Á þriðjudaginn á að einbeita sér að því hvernig best er að lesa í greinum atvinnuauglýsingu svo umsóknin svari kröfum vinnuveitandans.

Endilega komið með auglýsingu fyrir áhugavert starf, gjarnan útprentaða og hjálpumst að við að skrifa góða umsókn :)

Sjáumst! Anna og Anna