Næstu dagar í Jónshúsi

Fræðimaður segir frá, íslensk páskamessa, Garnaflækjan. 
Heimili Ingibjargar og Jóns er opið alla páskahelgina frá kl. 10 - 16.

Heimili Ingibjargar og Jóns er opið alla páskahelgina frá kl. 10 - 16.


Fræðimaður segir frá

Miðvikudaginn 1. apríl kl. 13. 

Höfum við lært eitthvað af Dönum?



Árið 2028 verða 90 ár frá setningu laga nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur, sem hafa mótað samskipti aðila vinnumarkaðarins á Íslandi. Lögin byggðu að einhverju leyti á danskri fyrirmynd.

Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, hefur um árabil rannsakað vinnumarkaðsmál og mun í fyrirlestrinum fjalla um hvernig og í hvaða átt þessi samskipti hafa þróast með hliðsjón af reynslu Dana tæpum 90 árum síðar.
Allir velkomnir
Aðgangur ókeypis


Mánudaginn 6. apríl, annan í páskum, kl. 13 verður íslensk páskamessa í Esajas Kirke.

  • Séra Sigfús Kristjánsson predikar og þjónar fyrir altari,
  • Kjartan Jósefsson Ognibene leikur á orgel og leiðir tónlistina.
  • Karlakórinn Hafnarbræður leiðir safnaðarsöng undir stjórn Eyrúnar Ingu Magnúsdóttur.

Verið öll velkomin.


Garnaflækjan í apríl

Þriðjudaginn 7. apríl kl. 18.30

Komdu og prjónaðu með okkur og njóttu samverunnar!

IMG_5192

Við ætlum að halda skiptimarkað* fyrir garn.
Hvernig virkar það: Mættu með garn sem aldrei varð að einhverju og sjáðu hvort þú getir skipst á því fyrir nýtt gull á prjónum.

Að auki verður tapas á borðum og fjölbreytt úrval drykkja í boði.
*Þú velur hvort þú tekur þátt.

IMG_5237

Prjónakaffi Garnaflækjunnar eru opin öllum sem hafa gaman af handavinnu. Viðburðurinn fer fram á íslensku. Endilega tilkynnið þátttöku hér. Til að geta tilkynnt þátttöku þarf viðkomandi að vera meðlimur í Garnaflækjunni í Kaupmannahöfn.
------
Húsið opnar klukkan 18:30
Verð 50 krónur fyrir þá sem ekki koma með veitingar.
Hægt verður að greiða með MobilePay eða pening