Sigurrós Eiðsdóttir sýnir í Jónshúsi

Sigurrós Eiðsdóttir sýnir í Jónshúsi

Verið velkomin á opnun sýningarinnar SUND

Verið velkomin á opnun sýningarinnar SUND
föstudaginn 8. febrúar kl. 17:00 - 20:00.


Sigurrós Eiðsdóttir (f.1991) útskrifaðist með BA-gráðu í myndlist frá Goldsmiths háskólanum í London árið 2016. Hún hefur tekið þátt í fjölda samsýninga, meðal annars í London, Leipzig, Berlín, Adelaide og Reykjavík. SUND er þriðja einkasýning Sigurrósar en hún hefur einnig verið með einkasýningu í London og Adelaide. Sigurrós býr og starfar í Berlín. Hún vinnur aðallega með ljósmyndun og klippimyndir í mínímalískum stíl og notast ýmist við sínar eigin ljósmyndir eða fundið efni í klippimyndirnar. Áhugi hennar á grafískri hönnun endurspeglast í verkum hennar. SUND er röð ljósmynda eftir Sigurrós sem hún hefur klippt og endurraðað.

„Sundlaugin hefur alltaf verið partur af mínu lífi. Hún hefur sérstaklega haft mikla fagurfræðilega þýðingu fyrir mig. Það hvernig vatnið og blái liturinn tvinnist saman er einstaklega grípandi og hreyfingin í vatninu skapar síbreytileg listaverk. Augnablikin getur maður síðan fest á mynd. Þá er líkaminn líka svo fallegur í sundlauginni. Hann flýtur og er frjáls; partur af lauginni. Það að horfa á vatn hefur einnig ákveðið dáleiðsluvald, tíminn virðist oft afstæður á meðan. Það má í raun segja að sýningin sé eins konar óður minn til íslensku sundlaugarinnar sem ég sakna svo mikið”


Boðið verður uppá léttar veitingar

Nánari upplýsingar um viðburðinn er að finna hér.