Páskabingó
Íslendingafélagið stendur fyrir fjölskyldupáskabingói í Jónshúsi sunnudaginn 22. mars.
Enn er hægt að tryggja sér miða.
Páskabingó í Jónshúsi

Íslendingafélagið stendur fyrir fjölskyldupáskabingói í Jónshúsi sunnudaginn 22. mars.
Enn er hægt að tryggja sér miða.
Til að sem flestir geti tekið þátt verður bingóið haldið í tveimur hollum:
- Fyrra holl: kl. 11:00
- Seinna holl: kl. 13:30
Aðgangur: 75 kr. (sama verð fyrir börn og fullorðna) – eitt bingóspjald fylgir með.
Aukaspjöld: 50 kr. hvert.

Glæsilegir páskavinningar í boði!
Við viljum koma á framfæri innilegu þakklæti til Icefood, sem er okkar helsti og ávallt trausti stuðningsaðili. Við erum afar þakklát fyrir þeirra aðkomu og stuðning við viðburði félagsins.
Tryggðu þér miða hér: Miðasala
Veldu annaðhvort fyrra eða seinna holl. Við mælum með að tryggja ykkur miða sem fyrst því þeir seljast oft upp hratt!
Léttar veitingar verða til sölu gegn vægu verði.
Við hlökkum til að sjá ykkur í páskastemningu!
Kær kveðja,
Stjórn ÍFK