Safnaðarstarfið hefst sunnudaginn 15. september

Orðabók Blöndals þá og nú, sunnudagaskóli, fermingarfræðsla, íslensk guðsþjónusta, íslenskt kaffihlaðborð Stöku og félag heldri borgara - 60plús

Föstudaginn 13. september frá kl. 17 til 19.

Orðabók Blöndals þá og nú

Fyrirlesarar eru Halldóra Jónsdóttir og Árni Davíð Magnússon, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Fyrirlesturinn er haldinn í samvinnu við Dansk Islandsk Samfund.


Fraedimadur-segir-fra-3_1567587813359
Íslensk-dönsk orðabók verður 100 ára á næsta ári og af því tilefni er nú unnið að stafrænni útgáfu á þessu mikla verki á Stofnun Árna Magnússonar í Reykjavík. Hópur stúdenta hefur annast verkið sem er mjög umfangsmikið, en bókin hefur að geyma um 80 þúsund íslensk uppflettiorð ásamt skýringum á dönsku. Afrakstur verkefnisins verður heimasíða með orðabókinni þar sem allt innihald hennar verður leitarbært með ýmsu móti.

Í fyrirlestrinum verður farið yfir sögu verksins í máli og myndum og greint frá starfinu við stafrænu gerðina ásamt undirbúningi þessarar nýju útgáfu sem verður tilbúin í apríl 2020.

Verkefnið er fjármagnað af Íslensk-dönskum orðabókarsjóði.

Viðburðurinn fer fram á dönsku, fyrirspurnum verður svarað á íslensku og dönsku.

Allir velkomnir.


Safnaðarstarfið hefst sunnudaginn 15. september

Sunnudagaskólinn kl. 11.15 í Jónshúsi. Nánari upplýsingar hér.


Kynningarfundur um fermingarfræðslu kl. 12.00 í Jónshúsi. Nánari upplýsingar hér.


Guðsþjónusta kl. 14.00 í Skt. Pauls kirkju

Prestur er séra Ágúst Einarsson. Organisti Sólveig Anna Aradóttir. Félagar úr Kammerkórnum Stöku taka lagið.


Að guðsþjónustu lokinni hefur Staka umsjón með kaffihlaðborði í Jónshúsi.

Nánari upplýsingar hér.


Félag heldri borgara - 60plús

Sú hugmynd hefur komið upp að stofna Félag heldri borgara, 60 ára og eldri, með það að markmiði að sameina Íslendinga á besta aldri sem hættir eru að vinna og búa á Kaupamannahafnarsvæðinu (öllum opið). Haldnir verða ýmsir viðburðir svo sem félagsvist, fræðslufundir, þorrablót og fleira, með það að leiðarljósi að bjóða upp á skemmtun og afþreyingu og í leiðinni efla tengslanet fólks. Hópurinn mun hafa aðsetur í Jónshúsi og mun dagskráin að mestu leyti fara fram á daginn.

Felag-heldri-borgara-i-Danmorku-3

 

Fyrsti viðburður hópsins er kynningarfundur sem haldinn verður miðvikudaginn 18. september kl. 13 í Jónshúsi. Áætlað er að fundurinn vari í um tvær klukkustundir og ljúki því um kl. 15.

Dagskrá fundarins er sem hér segir:

1. Kynning á starfi vetrarins

2. Hádegisverður: Smørrebrød (tvær sneiðar, einn öl) vatn og kaffi

3. Halla Benediktsdóttir, forstöðumaður Jónshúss, kynnir starfsemina í húsinu og segir frá og sýnir endurgert heimili Ingibjargar og Jóns á þriðju hæð hússins

Verð fyrir veitingar er 50 krónur

Áhugasemir vinsamlega tilkynnið þátttöku með því að senda tölvupóst á felagheldriborgara@gmail.com

Búið er að stofna hóp á Facebook hér.

Kær kveðja undirbúningsnefndin

Bogga, Halla og Vala