Sigrún Eldjárn sýnir í Jónshúsi
Velkomin á opnun sýningar laugardaginn 24. janúar kl. 15.30 - 18.00
Sigrún Eldjárn sem nú er fræðimaður í Jónshúsi opnar sína fjórðu einkasýningu í Jónshúsi á laugardaginn 24. janúar kl. 15.30 - 18.00
Hér er á ferðinni myndræn skrásetning á
mikilvægum smáatriðum á gömlum Íslendingaslóðum Kaupmannahafnar.
Skraut, áferð,
skilti, veggir, gluggar, áletrair og höggmyndir sem ekki hafa breyst síðan
íslenskir stúdentar og fleiri landar voru þar á sveimi á síðustu öldum.
Smáatriði sem við höfum enn fyrir augunum.

Þessi smáatriði tengja nútíð og fortíð á fallegan hátt.

Sigrún Eldjárn er einn vinsælasti barnabókarithöfundur Íslands.
Í Jónshúsi er til mikið af bókum hennar.
Fyrsta sýning Sigrúnar í Jónshúsi var árið 1984 þá sýndi hún grafíkmyndir.
Vorið 2017 voru það vatnslitamyndir þar sem viðfansefnið voru þau heiðurshjón
Ingibjörg Einarsdóttir og Jón Sigurðsson auk nokkurra mynda sem fjölluðu um
Bertel Thorvaldsen.
Í árið 2020 var viðfangsefnið fjallkonan.
Allir velkomnir
Sýningin stendur til 15. apríl 2026.