Þetta helst
Fræðimaður segir frá, Karístas Hrundar Pálsdóttir, Norðurljós, stofnfundur
Miðvikudagur 4. febrúar kl. 13 - 14.
FRÆÐIMAÐUR SEGIR FRÁ
Karítas Hrundar Pálsdóttir fræðimaður í Jónshúsi er doktor í ritlist og frumkvöðull þegar kemur að ritun sagna á einföldu máli á Íslandi.Hún hlaut viðurkenningu Íslenskrar málnefndar árið 2022 fyrir bækur sínar en sögur á einföldu máli geta stutt við inngildingu innflytjenda og aukið læsi þeirra á íslensku máli og menningu.
Þá er Karítas höfundur fræðibókarinnar Readaptation Narratives in Sojourner Literature sem kom út hjá Palgrave Macmillan þar sem hún færir rök fyrir því að svokallaðar „snúbúabókmenntir“ um enduraðlögun fólks að heimalandinu eftir stutta búsetu erlendis ætti að viðurkenna sem bókmenntagrein hliðstæða „innflytjendabókmenntum“ um aðlögun fólks að nýju landi, erlendis.

Karítas mun segja frá bókmenntum á einföldu máli fyrir innflytjendur og bókmenntir um snúbúa – fólk sem flytur aftur heim eftir tímabundna dvöl erlendis.
Allir velkomnir
Aðgangur ókeypis
Miðvikudaginn 4. febrúar kl. 16. - 17.
NORÐURLJÓS
Stofnfundur
Norðurljós er stuðningshópur fyrir fólk á öllum aldri sem greinst hefur með krabbamein, sem og aðstandendur þeirra.
Hópurinn hittist í Jónshúsi aðra hverja viku kl. 16:00.Fyrsti fundur 4. febrúar.
Í hópnum er rætt um viðbrögð við greiningu, áhrif á daglegt líf, helstu áskoranir og bjargráð. Hér gefst rými til að deila reynslu, hlusta og styðja hvert annað.Hópurinn er ætlaður þeim sem eru að ganga í gegnum krabbameinsferli, eða hafa gert það, og aðstandendum þeirra – og vilja eiga samtal á sínu móðurmáli með fólki sem skilur aðstæðurnar.
Ekki þarf að skrá sig – öll velkomin