2.3.2026

Aðþjóðlegur baráttudagur kvenna

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna verður haldinn hátíðlegur í Jónshúsi föstudaginn 6. mars nk.

Líkt og undanfarin ár verður viðburðurinn haldinn hátíðlegur í samstarfi við kvennakórinn Eyju.

Gestafyrirlesarar að þessu sinni eru Elinóra Guðmundsdóttir stofnandi og ritstýra útgáfufyrirtæksisins Via og ein þriggja ritstjóra bókarinnar Hennar rödd og Kaja Sigvalda ljósmyndari bókarinnar. Þær munu segja frá gerð bókarinnar og útgáfu, ljósmyndaferlinu og ræða kvenréttindabaráttuna, inngildingu og það að vera af erlendum uppruna.

640916575_18093214936993178_1567289427595268851_n

Þá er gaman að segja frá því að Hennar Rödd er tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, Fjöruverðlaunanna og vann um daginn Íslensku bókahönnunarverðlaunin í flokki heildarhönnun bóka.

Þær ætla einnig að vera með örfáar bækur til sölu á viðburðinum, á 600 kr.

641679464_18093214945993178_1301009610059517474_n

Kvennakórinn Eyja mun sjá um veitingar og hægt verður að kaupa bæði mat og drykkjarföng til styrktar kórastarfi þeirra.

Stefnt er að halda svo fjörinu áfram í góðu glensi að viðburði loknum, enda mikilvægt að styrkja tengslanetið og hafa gaman saman.

Hlökkum til að sjá ykkur

----------------------------

Félag kvenna í atvinnulífinu í Danmörku er öflugt samfélag íslenskra kvenna sem vilja vaxa, tengjast og hafa gaman.

Við erum fjölbreyttur hópur, á öllum aldri sem stendur saman og styður hvor aðra.

Í FKA-DK færð þú rými til að stíga út fyrir þægindarammann þar sem virðing, lærdómur og gleði eru í fyrirrúmi.