Aðventan er á næsta leiti! – Bókakvöld og fyrirlestur í Jónshúsi
Þriðjudaginn 24. nóvember kl. 19. 30 Allir velkomnir aðgangur ókeypis
Aðventan er tími eftirvæntingar, jólagleði og notalegra stunda – en líka verkefnalista, anna og stundum óþarflega mikils jólastress!
Í tilefni af útgáfu hljóðbókarinnar Gleðilega aðventu! bjóðum við til skemmtilegs bókakvölds í Jónshúsi þar sem við ætlum að koma okkur í aðventuskapið, hlæja aðeins að jólaundirbúningnum og velta fyrir okkur hvernig við getum notið jólanna án þess að missa okkur í stressinu.
Lovísa Dröfn , höfundur bókarinnar, les upp úr verkinu og segir frá tilurð þess. Bókin er jóladagatal fyrir fullorðna, með léttum og gamansömum undirtón, sem þekkja það að jólaundirbúningurinn geti stundum tekið yfir lífið!
Að loknum upplestri verður Kristín Þórisdóttir sálfræðingur með áhugavert spjall um streitu og álag á aðventunni. Við ræðum væntingar, kröfur og hvernig við getum betur hlúð að okkur sjálfum í amstri hversdagsins – ekki síst yfir hátíðarnar.
Súkkulaði og eitthvað gott í glasi verða á boðstólum og við lofum notalegri stemningu!
Komum saman, njótum stundarinnar og minnum okkur á að jólin eiga ekki að vera verkefni sem þarf að klára – heldur tími til að njóta.
Hlökkum til að sjá ykkur í Jónshúsi!
Nánar um viðburðinn hér.