Ást á íslensku - tónleikar
Hljómsveitin House of Johnny býður upp á órafmagnaða tónleika
föstudaginn 1. maí kl. 17.30–19.00.
75 DK miði og drykkur
Mobilepaybox 1179MD
Þeir sem eru ekki með Mobilepay geta skráð sig með því að senda tölvupóst á [email protected]
„Ást á íslensku“
Við flytjum alíslensk ástarlög í okkar eigin útsetningu. Lögin um það sem var, það sem er… og það sem hefði kannski getað orðið, lög sem allir ættu að þekkja.
House of Johnny skipa:
- Ágúst Óskar Gústafsson — gítar og píanó
- Sandra Gunnarsdóttir — söngur
- Smári Þorsteinsson — slagverk og söngur
- Grétar Ingi Grétarsson — kontrabassi

Komdu með þann sem þú elskar, þann sem þú saknar, eða bara sjálfan þig. Við bjóðum upp á glas af búbblum og skálum fyrir þér og fyrir ástinni!
Nánari upplýsingar um viðburðinn hér.
