Auglýst eftir umsóknum um dvöl í íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn 2027
Íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn er laus til afnota árið 2027, samkvæmt reglum um hús Jóns Sigurðssonar. Umsóknir þurfa að hafa borist skrifstofu Alþingis í síðasta lagi mánudaginn 9. nóvember næstkomandi.
Fræðimenn sem hyggjast stunda rannsóknir eða vinna að verkefnum í Kaupmannahöfn geta sótt um dvöl í íbúðinni. Hún er á fjórðu hæð Jónshúss, er tveggja herbergja og búin nauðsynlegum heimilisbúnaði.
Afnotin af íbúiðinni eru endurgjaldslaus. Þau sem fá úthlutað greiða þó 75.000 kr. fyrir þrif og rekstrarkostnað.
Nánari upplýsingar um fræðimannsíbúðir er að finna á vef Jónshúss.
Dvalartími í íbúðinni fer eftir umfangi verkefnis og öðrum aðstæðum en er að jafnaði ekki lengri en fjórar vikur. Gert er ráð fyrir að þau sem fá úthlutað dvöl nýti tímann að fullu til starfa í Danmörku.
Við úthlutun íbúðarinnar er meðal annars litið til þess að:
1. verkefnið hafi fræðilegt eða hagnýtt gildi og þyki áhugavert
2. umsókn sé vönduð
3. skipting milli kynja og fræðigreina sé sem jöfnust
4. verkefnið verði ekki unnið annars staðar en í Kaupmannahöfn eða nágrenni
Einnig er tekið mið af því hvort sótt er um dvöl í fyrsta sinn. Séu umsóknir að öðru leyti metnar jafnar ganga þau fyrir sem sækja um í fyrsta sinn.
Úthlutunarnefnd ráðgerir að ljúka störfum í nóvember 2026.
Sótt er um dvöl á sérstöku umsóknarformi hér.
