8.6.2022

Dagana 17. og 18. júní veður mikið um að vera í Kaupmannahöfn.

17. júní í Tívolí

Á þjóðhátíðardaginn 17. júní býður Tívolí upp á fjölbreytta fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Um er að ræða uppistand, vinnustofu, íslenska köku og tónleika svo eitthvað sé nefnt.

Nánar um viðburðinn hér.

Þess má geta að undanfarnar vikur hafa sjálfboðaliðar prjónað veifur í íslensku fánalitunum og verða veifurnar hengdar upp í Tívolí 17. júní. Munu veifurnar setja mikinn svip á garðinn verða þær alls yfir þúsund talsins.

Tónleikar í Jónshúsi kl. 20

 

Jón Kr. Ólafsson og Ingimar Oddsson munu halda tónleika í

Jónshúsi. Tónlistarmenn frá Íslandi og Danmörku leika með. Tónlistarsafn Jóns Kr. er 23ja ára þann dag og hljómsvei

tin Facon frá Bíldudal spilaði fyrst þennan dag fyrir 60 árum.

Aðgagur ókeypis, en skráning 

erá viðburðinn hér.

Tónleikar í Færeyingahúsinu kl. 20.30

Vesterbrogade 17a

Blaz Roca, Blaffi og DJ Bimbi

Kaupa miða hér.

Að vanda verður vegleg Þjóðhátíaðrdagskrá
laugardaginn 18. júní

Íslendingafélagið í Kaupmannhöfn heldur Fjölskylduhátíð á Femøren við Amager Strandpark. Allir eru hjartanlega velkomnir.

Dagskrá:

13.00 Svæðið opnar

14.00 Formaður Íslendingafélagsins setur hátíðina

14.15 Sigfús Kristjánsson sóknarprestur í Kaupmannahöfn heldur hátíðarræðu

14.30 Fjallkonan stígur á stokk

15.00 Arnar og Smári spila og syngja

16.00 Leynigestur

17.00 Formlegri dagskrá lýkur

Frá kl. 13 mun Íslendingafélagið selja pylsur (eina með öllu) og drykki.

IceFood hefur íslenskt sælgæti til sölu.

Öll börn fá íslenska fánann og poppkorn, auk þess sem þeim verður boðið í Hoppukastala og andlitsmálningu að kostnaðarlausu.

Á staðnum verða leikir fyrir börnin og alla aðra líka.