• Sigrún Eldjárn

3.12.2020

FJALLKONAN FRÍÐ – opnun

Sigrún Eldjárn sem nú er fræðimaður í Jónshúsi opnar sína þriðju einkasýningu í Jónshúsi á laugardaginn.

Sigrún Eldjárn er einn vinsælasti barnabókarithöfundur Íslands í Jónshúsi er til mikið af bókum hennar. Meðan hún dvelur í Jónshúsi undirbýr hún nýja bók um hann Kugg sem nú skottast um Kaupmannahöfn með Málfríði og mömmu hennar.

Fyrsta sýning Sigrúnar í Jónshúsi var árið 1984 þá sýndi hún grafíkmyndir.
Vorið 2017 voru það vatnslitamyndir þar sem viðfansefnið voru þau heiðurshjón Ingibjörg Einarsdóttir og Jón Sigurðsson auk nokkurra mynda sem fjölluðu um Bertel Thorvaldsen.
Myndir frá opnun sýningar.

Í ár er það fjallkonan okkar sem er viðfangsefnið. Hún er hér sýnd í ýmiss konar óvæntu ljósi. 
Um er að ræða myndir unnar með blýanti og vatnslitum á pappír.

Myndirnar eru til sölu og allar gerðar á árinu 2020.


Vegna samkomutakmarkana verður ekki um hefðbundna sýningaropnun að ræða en bæði á laugardegi 5. des. milli 16 og 18 og á sunnudeginum 6. des. milli kl 13 og 17 mun Sigrún vera á staðnum og taka á móti gestum.
Mátulega mörgum verður hleypt inn í einu og gætt að sóttvörnum. Eins og á öllum opinberum stöðum er gerð krafa um að bera andlistgrímu.
Boðið verður upp á ljúfan drykk fyrir þá sem vilja.
Sýningin stendur út janúar 2021.