13.5.2026

Fræðimaður sagði frá

Eríkur Bergmann, fræðimaður í Jónshúsi, hélt í gær áhugaverða og skemmtilega kynningu um upphaf þjóðarhugtaksins og hvernig bæði dönsk og íslensk þjóðernishyggja mótaðist í Kaupmannahöfn á 19. öld, á sama stað en út frá ólíkum forsendum, enda staða landanna gerólík á þeim tíma. IMG_7377
Eiríkur er prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst og hefur, ásamt öðru, fengist við rannsóknir á þjóðernishyggju og popúlisma. Hann ræddi m.a. hvernig þjóðernishyggja hefur breyst frá því að vera drifkraftur breytinga í yfir í að vera í sinni verstu mynnd lítið annað en rasismi.
IMG_7374
Eiríkur ræddi í þessu sambandi muninn á Danmörku og Íslandi og leitaðist eftir spurningum og kommentum frá áheyrendum sem voru fjölmargir í þetta sinn, enda greinilega mikill áhugi á efninu. Fjölmargar spurðu spurninga eða sögðu frá eigin reynslu, og ljóst er að ekki upplifa allir eins samband og tengsl Dana og Íslendinga. Að loknum fyrirlestri og spjalli voru veitingar í boði Jónshús sem gaf gestum færi á að staldra aðeins við og skrafa. Eiríki er hér með þakkað fyrir góða kynningu um áhugavert efni.