Fræðimaður segir frá
Saga tveggja þjóða – skapaðar hér í KaupmannahöfnEiríkur Bergmann sem nú dvelur sem fræðimaður í Jónshúsi ætlar að segja okkur frá því sem hann er að fást við þessa dagana.
___
Í rannsókn sinni segir Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, sögu tveggja þjóða sem urðu til á sama stað og á svipuðum tíma. Verkið rekur hvernig íslensk og dönsk þjóðernishyggja var mótuð í Kaupmannahöfn á 19. öld, á tímabili þegar hugmyndastraumar upplýsingar og rómantíkur fóru um Evrópu og borgin varð að miðdeiglu þjóðfrelsishugmynda.Þrátt fyrir sameiginlegan grunn tóku þessir straumar á sig gerólíkar myndir. Danmörk stóð frammi fyrir því að þurfa að enduruppgötva sjálfa sig eftir hrun heimsveldis og hernaðarósigra, og snerist dönsk þjóðernishyggja því fyrst og fremst um innri endurreisn ríkisins. Ísland var á hinn bóginn undirsett hinu danska ríkisvaldi. Íslenskir stúdentar í Höfn – þar á meðal Fjölnismenn – nýttu þetta nýja evrópska tungumál frelsisins til þess að endurskilgreina eigin stöðu og krefjast sjálfsforræðis.Dregin er söguleg lína frá hugsjónum brautryðjenda á borð við Baldvin Einarsson, Jónas Hallgrímsson og Jón Sigurðsson beint til stjórnmála samtímans. Verkið færir þannig fram nýjan skilning á þjóðfrelsisbaráttu fortíðarinnar, um leið og það tekur á brennandi álitamálum samtímans varðandi arfleifð nýlendutímans og uppgang þjóðernishyggju.Aðgangur ókeypis
Allir velkomnir
