17.11.2026

Fræðimaður segir frá; Ásdís Rósa Magnúsdóttir, prófessor

Fræðimaður segir frá, Ásdís Rósa Magnúsdóttir
Ævintýri og hryllingssögur í fyrstu íslensku barnabókunum
Í lok 18. aldar komu út fyrstu íslensku barnabækurnar, Sumargjöf handa börnum, og Kvöldvökurnar 1794. Hannes Finnsson, biskup í Skálholti, stóð fyrir útgáfu þeirra beggja, og hann skrifaði sjálfur síðara ritið. Hann vildi ekki láta sitt eftir liggja í uppfræðslu og lestrarkennslu íslenskrar æsku og var gagnrýninn á það lesefni og sögur sem til voru. Sumargjöf handa börnum er þýðing á þýsku riti og í því er að finna stuttar sögur um ódæl börn og örlög þeirra. Kvöldvökurnar 1794 eru annars eðlis. Þar greip Hannes til þess ráðs að þýða fjölda texta og raða upp í lestrarbók sem átti að vera í senn skemmtileg og fræðandi. Hann sótti hugmyndir sínar og efnivið í erlend rit en lagaði verkið að íslenskri kvöldvöku- og húslestrarhefð. Bók hans naut mikilla vinsælda og sumar sögurnar fóru á flakk. Í erindi mínu mun ég segja frá þessari bók og ætlunarverki Hannesar með útgáfu hennar.
Ásdís Rósa er prófessor í frönsku máli og bókmenntum við Háskóla Íslands og er nú að rannsaka tilurð fyrstu íslensku barnabókanna í evrópsku samhengi.
Aðgangur ókeypis - heitt og könnunni og smákökur