• 6491431897_c72240a853_z

27.9.2016

Fræðslufundur

Á morgun miðvikudag kl.15:30 fær hópurinn góðan gest, Björg Magnúsdóttir mun vera með fyrirlestur og að honum loknum verða umræður.  Björg hefur starfað sem starfsmanna- og skrifstofustjóri í stóru þjónustufyrirtæki í Danmörku í rúmlega 10 ár og hefur mikla reynslu af ráðningarferlinu í Danmörku. Hún hefur leiðbeint við gerð atvinnuumsókna, uppfærslur á ferilskrám, og um umsóknatækni. 
Vonandi geta sem flestir mætt í Jónshús og fengið aðstoð og hvatningu.

Allir velkomnir