Hátíð Jóns Sigurðssonar
Stjórn Húss Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn býður til Hátíðar Jóns Sigurðssonar sem haldin verður í Jónshúsi í Kaupmannahöfn á sumardaginn fyrsta, 21. apríl 2022, kl. 17.
DAGSKRÁ
- Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, setur hátíðina.
- Íslensk tónlist í flutningi kvennakórsins Dóttur.
- Peter Möllerrup, lögfræðingur flytur hátíðarræðu.
- Íslensk tónlist í flutningi kvennakórsins Dóttur.
- Forseti Alþingis afhendir verðlaun Jóns Sigurðssonar.
- Kvennakórinn Dóttir syngur lag í tilefni sumardagsins fyrsta.
Auður Elva Jónsdóttir, formaður stjórnar Húss Jóns Sigurðssonar, stjórnar dagskrá.
Léttar veitingar að lokinni dagskrá
Vinsamlegast látið vita af komu með því að senda tölvupóst á halla@jonshus.dk