Hátíð Jóns Sigurðssonar
Stjórn Húss Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn
býður til Hátíðar Jóns Sigurðssonar sem haldin verður í Jónshúsi í Kaupmannahöfn á sumardaginn fyrsta 23. apríl 2026, kl. 17.
DAGSKRÁ
-
Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, setur hátíðina.
-
Jana María Guðmundsdóttir og Sigurdís Sandra Tryggvadóttir flytja tónlistaratriði.
-
Hrefna Róbertsdóttir þjóðskjalavörður flytur hátíðarræðu.
-
Helga Diljá Jörundsdóttir leikur á fiðlu.
-
Forseti Alþingis afhendir Verðlaun Jóns Sigurðssonar.
-
Jana María Guðmundsdóttir og Sigurdís Sandra Tryggvadóttir flytja tónlistaratriði.
Auður Elva Jónsdóttir, formaður stjórnar Húss Jóns Sigurðssonar, stjórnar dagskrá.
Léttar veitingar að lokinni dagskrá.
Vinsamlegast látið vita af komu ykkar með því að samþykkja þetta boð eða senda tölvupóst á netfangið [email protected]

