11.4.2022

Hátíð Jóns Sigurðssonar

 

Stjórn Húss Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn

býður til Hátíðar Jóns Sigurðssonar sem haldin verður í Jónshúsi í Kaupmannahöfn á sumardaginn fyrsta, 21. apríl 2022, kl. 17. 

DAGSKRÁ

  • Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, setur hátíðina.
  • Íslensk tónlist í flutningi kórsins Stöku.
  • Berglind Hallgrímsdóttir, sérfræðingur hjá
  • Norrænu ráðherranefndinni flytur hátíðarræðu.
  • Íslensk tónlist í flutningi kórsins Stöku.
  • Forseti Alþingis afhendir verðlaun Jóns Sigurðssonar.
  • Kórinn Staka syngur lag í tilefni sumardagsins fyrsta.

Auður Elva Jónsdóttir, formaður stjórnar Húss Jóns Sigurðssonar, stjórnar dagskrá.

Léttar veitingar að lokinni dagskrá

Vinsamlegast látið vita af komu með því að senda tölvupóst á halla@jonshus.dk