Hátíðarguðsþjónusta og kaffihlaðborð.
Hátíðarguðsþjónusta í Esajas kirkju 10. júní
Íslensk guðsþjónusta verður annan hvítasunnudag 10. júní 2019 kl. 14 í Esajas kirkju Vinsamlegast athugið nýja staðsetningu: Malmøgade 14, 2100 København Ø, í 10 mínútna göngufæri frá Jónshúsi.
- Kvennakórinn í Kaupmannahöfn syngur.
- María Ösp Ómarsdóttir og Finnur Karlsson syngja og flytja tónlist.
- Fermd verða: Kristófer Örn Arnaldsson og Fríða Simone Friðriksdóttir.
- Organisti: Sólveig Anna Aradóttir.
- Prestur: sr. Ágúst Einarsson.
Kaffisala kvennakórsins
Mánudaginn 10. júní kl. 15:00
Jónshús er staðurinn til að hitta vini og kunningja og fá sér kaffi og með því.
Kvennakórinn verður með heita rétti, vöfflur og eitthvað gómsætt til sölu.
Verið velkomin!