Heitt súkkulaði, smákökur og bókakynning í Jónshúsi á fyrsta sunnudegi í aðventu.
Heitt súkkulaði, smákökur og bókakynning í Jónshúsi á fyrsta sunnudegi í aðventu.Eitt af því sem tilheyrir aðventunni í Jónshúsi er notaleg stund með heitu súkkulaði og smákökum.
Íslenski söfnuðurinn og Jónshús bjóða ykkur hjartanlega velkomin í Jónshús, 29. nóvember kl. 14.00 eða að lokinni aðventumessu í Esjakirkju.Í ár fáum við góðan gest frá Íslandi, rithöfundinn Steindór Ivarsson, sem mun lesa úr nýútkominni spennusögu sinni ÓTTI.
Bókin verður til sölu á staðnum.Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!
Mikilvægt: Vinsamlegast hakið við mætingu hér á viðburðinum svo við getum tryggt að nóg verði til af súkkulaði og smákökum fyrir alla!
Viðburður Hlökkum til að sjá ykkur og eiga saman notalega aðventustund!
